Cyclamen hederifolium
Klunguralpafjóla
Maríulykilsætt
Primulaceae
Height
lágvaxin, um 5-10 cm
Flower color
bleikur
Flowering
september-október
Leaf color
grænn með silfruðu mynstri
Lighting conditions
hálfskuggi
Soil
vel framræstur, lífefnaríkur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
takmörkuð reynsla, viðkvæm fyrir vetrarbleytu
Homecoming
Evrópa
Alpafjólur, Cyclamen, er lítil ættkvísl um 23 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Heimkynni þeirra eru í Evrópu og frá botni Miðjarðarhafs austur til Kákasus og Írans. Tegundir ættkvíslarinnar eiga það sameiginlegt að mynda kringlótt hnýði og er nafn ættkvíslarinnar dregið af því. Þær eru allar lágvaxnar, með sígrænu, leðurkenndu laufi sem er oft með silfruðu mynstri og hvítum eða bleikum blómum með aftursveigðum krónublöðum.
Fjölgun:
Sáning - sáð í janúar-febrúar.
Fræ lagt í bleyti í a.m.k. sólarhring í volgu vatni og síðan skolað, fyrst í útþynntu sápuvatni og svo hreinu vatni. Fræið er síðan rétt hulið og haft við stofuhita fram að spírun.
Smávaxin skógarbotns planta sem þarf vel framræstan, lífefnaríkan jarðveg. Laufið er dökkgrænt með silfruðu mynstri og blómin eru í bleikum litatónum. Laufið visnar yfir sumarmánuðina og ætti að bæta safnhaugamold yfir þegar laufið hefur visnað. Það er æskilegt að hreykja laufi að henni á haustin til að skýla henni yfir vetrarmánuðina. Hún er viðkvæm fyrir vetrarbleytu.