top of page

Heucherella

Heucherella er nýleg ættkvísl sem varð til með víxlun tveggja ættkvísla, Heuchera, roðablóma og Tiarella, löðurblóma. Báðar ættkvíslir tilheyra steinbrjótsætt, Saxifragaceae, og eiga heimkynni í N-Ameríku. Blendingarnir sameina fjölbreyttan lauflit roðablóma og hjartalaga lauf og blómfegurð löðurblóma, en líkjast roðablómunum þó meira.

Heucherella 'Tapestry'

Lágvaxin fjölær planta með bleikum blómum og grænu laufi við vínrauðu æðaneti.

bottom of page