top of page
Saponaria
Þvottajurtir
Þvottajurtir, Saponaria, er ættkvísl í hjartagrasaætt, Caryophyllaceae, með heimkynni í Evrópu og Asíu. Latneska heiti ættkvíslarinnar þýðir "sápusafi", en safi tegunda ættkvíslarinnar inniheldur saponína sem freyða og verka líkt og s ápa. Hefur a.m.k. sápujurt verið notuð til að búa til fljótandi sápu með því að leggja laufið í bleyti. Flestar tegundir eru með bleik eða hvít blóm. Þær vaxa við breytileg skilyrði, sumar tegundir eru fallegar steinhæðaplöntur sem þrífast best í þurrum, sólbökuðum jarðvegi en aðrar eru hávaxnari og kjósa rakan jarðveg.
bottom of page

