Silene acaulis
Lambagras
Hjartagrasaætt
Caryophyllaceae
Height
lágvaxið, um 5 - 10 cm
Flower color
ljósbleikur
Flowering
maí - júní
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól
Soil
grýttur, vel framræstur
pH
hlutlaust - basískt
Toughness
harðgert við rétt skilyrði
Homecoming
fjöll og heimskautasvæði á norðurhveli, m.a. á Íslandi
Hjartagrös, Silene, er stærsta ættkvísl hjartagrasaættar, Caryophyllaceae, með útbreiðslu um allan heim, með mestan tegundafjölda á norðurhveli. Hjartagrös vilja vera sólarmegin í lífinu, margar lágvaxnar tegundir eru úrvals steinhæðaplöntur. Ein tegund, lambagras, vex villt á Íslandi.
Fjölgun:
Sáning - sáð í september - nóvember.
Fræ ekki hulið og haft úti fram á vor. Ef fræ spírar ekki við hitastig úti er það fært inn í stofuhita eða gróðurhús.
Myndar þéttar þúfur, um 5 - 10 cm á hæð. Þarf grýttan, malarkenndan jarðveg og sólríkan stað. Fer vel í steinhæð. Íslensk jurt.