top of page

Trollius pumilus

Dvergagullhnappur

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Height

lágvaxinn, um 10 - 20 cm á hæð

Flower color

gulur

Flowering

júní - júlí

Leaf color

grænn

Lighting conditions

sól

Soil

lífefnaríkur, rakur, meðalfrjór, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Toughness

harðgerður

Homecoming

Himalaya, A-Tíbet

Glóhnappar, Trollius, er lítil ættkvísl um 30 tegunda í sóleyjaætt, Ranunculaceae, með heimkynni dreifð um  nyrðra tempraða beltið með mestan tegundafjölda í Asíu. Þeir vaxa almennt í blautri leirmold í heimkynnum sínum en gera engar sérstakar jarðvegskröfur í görðum.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð í september - nóvember.

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita í 2 vikur og síðan sett út fram að spírun. Fræið þarf að frjósa, svo ekki er nóg að geyma það í kæli.

Lágvaxin planta sem þarf jafnrakan jarðveg í sól.

Do you have a photo or experience with this plant?

You can share photos and experiences here.

bottom of page