Anemone coronaria 'The Bride' - maríusnotra
Maríusnotra (Anemone coronaria) - de Caen-serían
'The Bride' er sort af maríusnotru sem blómstrar einföldum, kremhvítum blómum.
10 stk í pakka
Ræktunarleiðbeiningar
Animónur, eða maríusnotrur, þrífast vel í sól eða hálfskugga í frjóum, vel framræstum jarðvegi. Þær er hægt að forrækta í pottum, eða planta beint út í maí. Ef þær eru forræktaðar inni þarf að gæta þess að hafa þær ekki í of miklum hita, gróðurhús eða gróðurreitur myndi henta best. Mörgum finnst erfitt að átta sig á því hvernig hnýðin eiga að snúa. Það getur hjálpað að leggja þau í bleyti í nokkrar klukkustundir, en ef í vafa, er einfaldasta leiðin einfaldlega að snúa þeim upp á rönd.
Maríusnotrurnar ná yfirleitt bara að blómstra fyrsta árið eftir gróðursetningu. Hnýðin lifa veturinn af og senda upp ræfilslegt lauf og jafnvel stöku blóm næstu sumur á eftir, en þær verða aldrei eins fallegar og fyrsta sumarið.