Cortusa matthioli
Alpabjalla
Maríulykilsætt
Primulaceae
Height
lágvaxin, um 20 cm
Flower color
rauðfjólublár
Flowering
júní
Leaf color
grænn
Lighting conditions
hálfskuggi
Soil
vel framræstur, lífefnaríkur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
harðgerð
Homecoming
fjalllendi í suður og austur Evrópu, m.a. Alpafjöll og Karpatafjöll
Bjöllulyklar, Cortusa, er lítil ættkvísl í maríulykilsætt, Primulaceae, sem líkjast nokkuð maríulyklum. Flestar tegundir eru vorblómstrandi fjallaplöntur sem vaxa í fjöllum S- og A-Evrópu m.a. Ölpunum og Karpatafjöllum, en einhverjar tegundir vaxa í Kína.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð að vori.
Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Spírun getur verið hæg og tekið nokkra mánuði. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.
Falleg skógarplanta sem þrífst best í vel framræstum, lífefnaríkum jarðvegi og hálfskugga, þar sem sólin nær að skína aðeins í gegn.