top of page

Dianthus freynii

Hjartagrasaætt

Caryophyllaceae

Height

lágvaxin, um 5 - 10 cm

Flower color

fölbleikur

Flowering

júní - júlí

Leaf color

grænn

Lighting conditions

sól

Soil

vel framræstur, blandaður grófum sandi

pH

hlutlaust - basískt

Toughness

frekar viðkvæm, þolir illa vetrarbleytu

Homecoming

fjalllendi á Balkanskaga

Dianthus, drottningablóm, er stór ættkvísl í hjartagrasaætt, Caryophyllaceae, með um 300 tegundum sem flestar eiga heimkynni við Miðjarðarhafið, norður eftir Evrópu og austur til Asíu. Flestar mynda lága brúska eða breiður og vaxa best í þurrum, grýttum jarðvegi á sólríkum stað og henta því vel í steinhæðir.

Fjölgun:


Sumargræðlingar.

Blómlaus stilkur rifinn frá alveg niður við jörð og stungið í vikurblandaða pottamold. Haldið röku á skýldum stað, ekki í sterkri sól þar til græðlingurinn hefur rótað sig.


Sáning - sáð að vori.

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Yndislega falleg þúfumyndandi steinhæðaplanta með fölbleikum blómum. Frekar viðkvæm, þolir illa vetrableytu.

Do you have a photo or experience with this plant?

You can share photos and experiences here.

bottom of page