top of page

Senecio

Krossfíflar, kambfíflar

Krossfíflar, Senecio, er stór og fjölbreytt ættkvísl í körfublómaætt, Asteraceae. Þetta er ein stærsta ættkvísl blómstrandi jurta með yfir 1200 tegundir, sem hafa útbreiðslu um allan heim. Þær blómstra oftast gulum blómum, en hvít, græn, fjólublá eða blá blóm eru sjaldgæfari. Innan ættkvíslarinnar má finna tegundir úr ýmsum flokkum, s.s. sumarblóm (silfurkambur), tré, runna og hið magnaða illgresi, krossfífil, sem er sennilega útbreiddasta tegund ættkvíslarinnar hér á landi.  Þar má þó einnig finna harðgerðar fjölærar plöntur sem eru ágætar garðplöntur.

Senecio ovatus

Lundaþulur

Lundaþulur er hávaxin fjölær planta sem blómstrar gulum körfublómum í júlí - ágúst.

bottom of page