top of page
Mýrastigi

Aconitum lycoctonum ssp. neapolitanum

Gulhjálmur

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

hávaxinn, um 150 cm

Blómlitur

fölgulur

Blómgun

ágúst

Lauflitur

dökk grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, rakur, frjór

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

S-Evrópa

Ættkvíslin Aconitum, bláhjálmar tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae og eins og margar ættkvíslir þeirrar ættar eru bláhjálmar eitraðir. Flestir raunar svo eitraðir að á ensku nefnast þeir "wolf's bane" eða úlfabanar og voru vinsæl aðferð hjá kóngafólki fyrri alda til að ryðja keppinautum úr vegi. Bláhjálmar eru harðgerðir og  þola nokkurn skugga, en of mikill skuggi getur þó komið niður á blómgun. Þeir kunna best við sig í frjósömum, heldur rakaheldnum en þó gljúpum jarðvegi enda vaxa flestar tegundir á fjallaengjum á norðurhveli jarðar.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - þarf kaldörvun, best sáð að hausti.

Fræ hulið og haft í 2-4 vikur við stofuhita og svo er best að setja sáninguna út fram að spírun. Spírun getur verið hæg, fræ gæti spírað ári síðar og því mikilvægt að henda ekki sáningunni of snemma. Á kaldörvunartímabilinu þarf hitastigið að fara niður í -5°C í a.m.k. 4-6 vikur. Spírar best við 5-12°C.

Hávaxin planta sem er vindþolin og þarf almennt ekki stuðning. Hann þrífst best í frjóum og lífefnaríkum jarðvegi sem er vel framræstur, en þó jafnrakur. Þolir samt flestar jarðvegsgerðir. Harðgerð og auðræktuð planta sem er mjög eitruð.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

Garðaflóra slf.
kt: 550421-1430

vsk. nr.: 140886
Suðurgötu 70, 220 Hafnarfirði

S: 780-8875

gardaflora@gardaflora.is

Opnunartími:
 

Eingöngu vefverslun

Afhending sóttra pantana

eftir samkomulagi

Opnunartími garðplöntusölunnar birtist hér á síðunni og á Facebook síðu Garðaflóru

  • Facebook App Icon
  • Instagram
  • bluesky-seeklogo
bottom of page