top of page
Anemone blanda 'Charmer'
Balkansnotra
Sóleyjaætt
Ranunculaceae
Hæð
lágvaxin, um 10-20 cm
Blómlitur
purpurableikur
Blómgun
apríl-maí
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerð
Heimkynni
tegundin vex villt í SA-Evrópu
Snotrur, Anemone, tilheyra sóleyjaætt, Ranunculaceae og líkjast mjög sóleyjum. Þær vaxa einkum á norðlægum slóðum og upp til fjalla. Margar blómstra á vorin eða snemmsumars, þó nokkrar, eins og haustsnotra, blómstri síðsumars.
Fjölgun:
Hnýði gróðursett að hausti.
Skipting að vori.
Vorblómstrandi skógarbotnsplanta sem blómstar purpurableikum blómum í maí.
Hún verður fallegust í vel framræstri mold í sól eða hálfskugga. Fer vel í trjábeðum.
bottom of page