top of page
![]() |
---|
Anemone blanda 'White Splendour'
Balkansnotra
Sóleyjaætt
Ranunculaceae
Hæð
lágvaxin, um 10-20 cm
Blómlitur
hvítur
Blómgun
apríl-maí
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól-hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerð
Heimkynni
tegundin vex villt í SA-Evrópu
Snotrur, Anemone, tilheyra sóleyjaætt, Ranunculaceae og líkjast mjög sóleyjum. Þær vaxa einkum á norðlægum slóðum og upp til fjalla. Margar blómstra á vorin eða snemmsumars, þó nokkrar, eins og haustsnotra, blómstri síðsumars.
Fjölgun:
Hnýði gróðursett að hausti.
Skipting að vori.
Vorblómstrandi skógarplanta sem blómstrar hvítum blómum í maí. Hún verður fallegust í vel framræstri mold.
Fer vel í trjábeðum. Harðgert og gróskumikið afbrigði.
bottom of page