top of page

Aquilegia flabellata 'Pink Cameo'

Blævatnsberi

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

lávaxinn, um 15-20 cm

Blómlitur

tvílitur, bleikur og kremhvítur​

Blómgun

júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, næringarríkur, frekar rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

tegundin vex villt í Japan og Kóreu

Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.

Fjölgun:


Sáning - sáð að vori

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun sem getur verið hæg. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Mjög smávaxinn vatnsberi sem er ekki eins harðgerður og tegundin. Hann þarf létta, næringarríka mold
og sól part úr degi. Sáir sér lítið.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page