top of page

Aquilegia x hybrida 'Red Hobbit'

Garðavatnsberi

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

hávaxinn, um 50 cm

Blómlitur

tvílitur, rauður og kremgulur

Blómgun

júní - júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, næringarríkur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

garðaafbrigði

Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.

Fjölgun:


Sáning - sáð að vori.

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 15-20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Gömul sort af garðavatnsbera sem kom fram í kringum 1950 og hefur notið mikilla vinsælda síðan þá.
Stór, tvílit blóm í mikilli litadýrð. Harðgerður, en þrífst best í vel framræstum, frjóum jarðvegi í sól eða hálf skugga. Sáir sér svolítið, en blandast öðrum tegundum, svo hann er ekki fræekta. Þarf stuðning.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page