top of page

Arabis caucasica

Arabis alpina ssp. caucasica

Garðskriðnablóm

Krossblómaætt

Brassicaceae

Hæð

lágvaxið, 10-15 cm​

Blómlitur

purpurableikur

Blómgun

apríl - júní

Lauflitur

grágrænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgert

Heimkynni

SA-Evrópa, Miðjarðarhafssvæðið

Skriðnablóm, Arabis, er ættkvísl í krossblómaætt Brassicaceae. Þetta eru lágvaxnar fjallaplöntur sem vaxa í grýttum jarðvegi, flestar í fjöllum Evrópu og Asíu.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Græðlingar snemmsumars. Stilkur rifinn af alveg niðri við jörð og settur í raka vikurblandaðamold. Haldið röku og ekki haft í sterku sólskini á meðan það er að ræta sig, sem gerist nokkuð fljótt.


Sáning - sáð að vori

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Harðgerð og blómsæl vorblómstrandi planta sem fer vel í steinhæð eða fremst í beði. Verður þakin blómum á meðan á blómgun stendur. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page