top of page
Mýrastigi

Armeria maritima 'Alba'

Geldingahnappur

Gullintoppuætt

Plumbaginaceae

Hæð

lágvaxinn, um 15 cm​

Blómlitur

hvítur með fölbleikri slikju

Blómgun

miðjan júní

Lauflitur

dökkgrænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, sendinn

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

strandsvæði á norðurhveli

Gullintoppur, Armeria, tilheyra gullintoppuætt, Plumbaginaceae. Tegundir ættkvíslarinnar eru mjög líkar og oft erfitt að greina á milli tegunda. Þær einkennast af jarðlægri blaðhvirfingu striklaga laufblaða og blómkollum á blaðlausum stilki. Ein íslensk planta, geldingahnappur, tilheyrir þessari ættkvísl en aðrar tegundir eiga flestar heimkynni við Miðjarðarhafið.

Fjölgun:


Sáning - sáð að vori

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Spírun getur verið hæg. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Sort af geldingahnappi með hvítum blómum. Hann verður fallegastur í grófri sandblöndu sem er 20-30% mold. Þarf sólríkan stað til að þrífast vel.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

Garðaflóra slf.
kt: 550421-1430

vsk. nr.: 140886
Suðurgötu 70, 220 Hafnarfirði

S: 780-8875

gardaflora@gardaflora.is

Opnunartími:
 

Eingöngu vefverslun

Afhending sóttra pantana

eftir samkomulagi

Opnunartími garðplöntusölunnar birtist hér á síðunni og á Facebook síðu Garðaflóru

  • Facebook App Icon
  • Instagram
  • bluesky-seeklogo
bottom of page