top of page
Celmisia angustifolia
Melaselma
runnaselma
Körfublómaætt
Asteraceae
Hæð
lágvaxin, um 25 cm
Blómlitur
hvítur
Blómgun
júní
Lauflitur
grágrænn, silfraður á neðra borði
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, rakur
pH
súrt - hlutlaust
Harðgerði
þrífst vel við rétt skilyrði
Heimkynni
Nýja Sjáland (Suðureyja)
Selmur, Celmisia, er ættkvísl jurta og hálfrunna í körfublómaætt, Asteraceae. Þær eiga flestar heimkynni á Nýja Sjálandi, en nokkrar í Ástralíu.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð síðvetrar, í janúar - febrúar.
Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Fræ spírar betur í ljósi.
Lágvaxin planta sem vex best í sól eða hálfskugga í vel framræstum, aðeins rökum jarðvegi. Hentar vel í steinhæðir. Vex í graslendi til fjalla í heimkynnum sínum.
bottom of page