Convallaria majalis
Dalalilja
Aspasætt
Asparagaceae
Hæð
lágvaxin, um 20 cm á hæð
Blómlitur
hvítur
Blómgun
júní
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
hálfskuggi
Jarðvegur
lífefnaríkur, vel framræstur, frekar rakur
pH
súr - hlutlaus - basískur
Harðgerði
harðgerð
Heimkynni
tempraða belti Evrópu og Asíu
Dalalilja er eina tegund ættkvíslarinnar Convallaria sem áður tilheyrði liljuætt, en er nú í aspasætt, Asparagaceae. Hún er skógarplanta sem vex í björtum laufskógum í Evrópu og Asíu.
Fjölgun:
Skipting snemma vors eða að hausti.
Sáning - þarf kaldörvun, best sáð að hausti.
Fræ rétt hulið og sett út fram að spírun. Spírun getur verið hæg, fræ gæti spírað ári síðar og því mikilvægt að henda ekki sáningunni of snemma. Fræ hefur stutt geymsluþol og því best að sá því eins fljótt og mögulegt er. Spírar best við 15°C.
Falleg skógarplanta sem þrífst best í lífefnaríkum jarðvegi og hálfskugga, þar sem sólin nær að skína aðeins í gegn.
Eitruð planta.