top of page

Dianthus amurensis 'Siberian Blues'

Kínadrottning

Hjartagrasaætt

Caryophyllaceae

Hæð

lágvaxin, um 15 - 20 cm

Blómlitur

bleiklilla

Blómgun

lok ágúst - september, treg til að blómstra

Lauflitur

grágrænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, blandaður grófum sandi

pH

hlutlaust - basískt

Harðgerði

viðkvæm fyrir vetrarbleytu

Heimkynni

Síbería

Dianthus, drottningablóm, er stór ættkvísl í hjartagrasaætt, Caryophyllaceae, með um 300 tegundum sem flestar eiga heimkynni við Miðjarðarhafið, norður eftir Evrópu og austur til Asíu. Flestar mynda lága brúska eða breiður og vaxa best í þurrum, grýttum jarðvegi á sólríkum stað og henta því vel í steinhæðir.

Fjölgun:


Sumargræðlingar.

Blómlaus stilkur rifinn frá alveg niður við jörð og stungið í vikurblandaða pottamold. Haldið röku á skýldum stað, ekki í sterkri sól þar til græðlingurinn hefur rótað sig.


Sáning - sáð að vori.

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Sort ræktuð af fræi frá Thompson & Morgan. Þarf sólríkan stað og mjög gott frárennsli. Blómstrar mjög seint, ef hún blómstrar.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page