top of page
Mýrastigi

Dianthus gratianopolitanus

Laugadrottning

Hjartagrasaætt

Caryophyllaceae

Hæð

lágvaxin, um 15 cm

Blómlitur

bleikur - rauður

Blómgun

júlí

Lauflitur

grágrænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, blandaður grófri möl

pH

hlutlaust - basískt

Harðgerði

sögð harðgerð

Heimkynni

Mið- og Vestur-Evrópa

Dianthus, drottningablóm, er stór ættkvísl í hjartagrasaætt, Caryophyllaceae, með um 300 tegundum sem flestar eiga heimkynni við Miðjarðarhafið, norður eftir Evrópu og austur til Asíu. Flestar mynda lága brúska eða breiður og vaxa best í þurrum, grýttum jarðvegi á sólríkum stað og henta því vel í steinhæðir.

Fjölgun:


Sumargræðlingar.

Blómlaus stilkur rifinn frá alveg niður við jörð og stungið í vikurblandaða pottamold. Haldið röku á skýldum stað, ekki í sterkri sól þar til græðlingurinn hefur rótað sig.


Sáning - sáð að vori.

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Líkist fjaðradrottningu og vex við sömu skilyrði. Oft með dekkri blómum, alveg út í rautt.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

Garðaflóra slf.
kt: 550421-1430

vsk. nr.: 140886
Suðurgötu 70, 220 Hafnarfirði

S: 780-8875

gardaflora@gardaflora.is

Opnunartími:
 

Eingöngu vefverslun

Afhending sóttra pantana

eftir samkomulagi

Opnunartími garðplöntusölunnar birtist hér á síðunni og á Facebook síðu Garðaflóru

  • Facebook App Icon
  • Instagram
  • bluesky-seeklogo
bottom of page