top of page

Geranium argenteum

Silfurgresi

Blágresisætt

Geraniaceae

Hæð

lágvaxinn, um 10 - 15 cm

Blómlitur

hvítur með bleikum æðum

Blómgun

síðari hluta júní

Lauflitur

grágrænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, blandaður vikri

pH

súrt - hlutlaust

Harðgerði

þrífst ef frárennsli er gott

Heimkynni

fjallendi í Frakklandi, Ítalíu og á Balkanskaga

Blágresi, Geranium, er nokkuð stór ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae, sem inniheldur mikinn fjölda úrvals garðplantna. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir tempruðu beltin, með mestan tegundafjölda við austanvert Miðjarðarhafssvæðið.

Fjölgun:


Græðlingar af stönglum síðsumars.


Fræ - sáð síðvetrar

Fræ hulið og haft við stofuhita fram að spírun.

Smágert blágresi sem þarf sólbakaðan, grýttan jarðveg til að þrífast vel.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page