< Fyrri
Næsta >
Geranium pratense
Garðablágresi
Blágresisætt
Geraniaceae
Hæð
hávaxið, um 70 - 80 cm
Blómlitur
bláfjólublár
Blómgun
júní - ágúst
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
meðalfrjór, vel framræstur, þolir flestar jarðvegsgerðir
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgert
Heimkynni
víða í Evrópu og Asíu
Blágresi, Geranium, er nokkuð stór ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae, sem inniheldur mikinn fjölda úrvals garðplantna. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir tempruðu beltin, með mestan tegundafjölda við austanvert Miðjarðarhafssvæðið.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð að hausti eða vetri.
Fræ hulið og haft úti fram að spírun.
Hávaxið og þarf stuðning. Harðgert.
Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?
Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.