top of page
Mýrastigi

Gypsophila paniculata 'Rosea'

Brúðarslæða

Hjartagrasaætt

Caryophyllaceae

Hæð

meðalhá, um 40 - 50 cm

Blómlitur

fölbleikur

Blómgun

september

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, vel framræstur

pH

hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð, en blómstrar of seint

Heimkynni

garðaafbrigði, tegundin vex villt í mið- og A-Evrópu

Blæjublóm, Gypsophila, er ættkvísl í hjartagrasaætt, Caryophyllaceae, með útbreiðslu um Evrasíu, Afríku og Eyjaálfu, með mestan tegundafjölda í Tyrklandi. Blæjublóm hafa djúpstætt rótarkerfi og er því illa við flutning. Þau þrífast best í djúpum, vel framræstum jarðvegi á sólríkum stað.

Fjölgun:


Græðlingar - rótargræðlingar eða sumargræðlingar.


Sáning - sáð að vori.

Fræ ekki hulið eða rétt hulið með mjög þunnu moldarlagi og haft við stofuhita fram að spírun.

Blómstrar of seint og er ekki nógu falleg til að verðskulda pláss í garðinum. Blómklasar mjög gisnir og blómin smá, mjög fölbleik, næstum hvít. Blómstraði í lok september 2008 sem var eitt hlýasta sumar í mörg ár.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

Garðaflóra slf.
kt: 550421-1430

vsk. nr.: 140886
Suðurgötu 70, 220 Hafnarfirði

S: 780-8875

gardaflora@gardaflora.is

Opnunartími:
 

Eingöngu vefverslun

Afhending sóttra pantana

eftir samkomulagi

Opnunartími garðplöntusölunnar birtist hér á síðunni og á Facebook síðu Garðaflóru

  • Facebook App Icon
  • Instagram
  • bluesky-seeklogo
bottom of page