Helleborus niger
Jólarós
Sóleyjaætt
Ranunculaceae
Hæð
lágvaxin um 20 cm
Blómlitur
hvítur
Blómgun
febrúar - maí eftir tíðarfari
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur, rakur, frjór, lífefnaríkur
pH
hlutlaust - basískt
Harðgerði
virðist þokkalega harðgerð
Heimkynni
Alpafjöll og fjöll á Balkanskaga
Jólarósir, Helleborus, er ættkvísl um 20 tegunda í sóleyjaætt, Ranunculaceae, með heimkynni í Evrasíu, flestar á Balkanskaga. Þetta eru sígrænar jurtir sem vaxa í frjóum, heldur basískum jarðvegi í hálfskugga innan um lauftré og runna og blómgast síðvetrar eða að vori.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð að hausti eða síðvetrar.
Fræ hefur mjög takmarkað geymsluþol og ætti að geymast í kæli fram að sáningu. Best er að sá því eins fljótt og hægt er eftir að því er safnað.
Fræ hulið og haft við 22°C+ í 6 vikur og síðan sett út fram að spírun.
Blómstrar mjög snemma, jafnvel í febrúar-mars í mildum vetrum. Eitruð planta.