top of page

Lamium maculatum 'Mojito'

Dílatvítönn

Varablómaætt

Lamiaceae

Hæð

lágvaxin, um 30 cm

Blómlitur

fjólubleikur

Blómgun

frá síðari hluta júní og frameftir sumri

Lauflitur

límónu - myntugrænn

Birtuskilyrði

hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frekar rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð

Heimkynni

garðaafbrigði, tegundin vex villt í Evrópu og tempruðum svæðum Asíu

Tvítennur, Lamium, er ættkvísl um 50 tegunda í varablómaætt, Lamiaceae, með heimkynni í Evrópu, Asíu og Afríku. Þær eru margar skriðular og skuggþolnar og því góðar þekjuplöntur á skuggsælum stöðum.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sveiggræðsla - stilkur hulinn mold þar sem ætlunin er að fá rætur og látinn ræta sig áður en hann er skilinn frá.

Sjálfsáður blendingur. Límónu - myntugrænt lauf og fjólubleik blóm.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page