top of page

Myosotis alpestris

Bergmunablóm

Munablómaætt

Boraginaceae

Hæð

lágvaxið, um 20 cm

Blómlitur

blár

Blómgun

júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, vikur/malarblandaður, rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgert, en getur orðið skammlíft

Heimkynni

Fjalllendi í Evrópu, Asíu og N-Ameríku

Munablóm, Myosotis, er ættkvísl í munablómaætt, Boraginaceae. Tegundafjöldi er nokkuð á reiki, en telur a.m.k. 74 viðurkenndar tegundir. Flestar tegundir er að finna á tveimur aðskildum útbreiðslusvæðum. Tegundir í vestanverðri Evrasíu hafa himinblá blóm og tegundir á Nýja-Sjálandi margar hverjar hvít eða gul blóm. Einnig finnast nokkrar tegundir í N- og S-Ameríku. Munablóm eru flest sólelsk og þurrkþolin.

Fjölgun:


Sáning - sáð að vori

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita fram að spírun.

Minnir á gleym-mér-ei, en blóm eru heldur stærri og blómskipun þéttari.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page