top of page
![]() |
|---|
Polemonium viscosum 'Blue Whirl'
Klettastigi
Jakobsstigaætt
Polemoniaceae
Hæð
meðalhár, 50 - 60 cm
Blómlitur
bláfjólublár
Blómgun
júlí - ágúst
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
lífefnaríkur, vel framræstur, aðeins rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerður
Heimkynni
tegundin vex villt í vestanverðri N-Ameríku.
Jakobsstigar, Polemonium, er ættkvísl í jakobsstigaætt, Polemoniaceae. Allar tegundir eiga heimkynni um norðanvert kaldtempraðabeltið utan ein, sem vex í sunnanverðum Andesfjöllum.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð að vori.
Fræ rétt hulið og haft við stofuhita fram að spírun, sem getur verið hæg.
Sort af klettastiga sem líkist mjög jakobsstiga, en blómin eru blárri. Þarf stuðning.

