top of page
Mýrastigi

Potentilla nitida

Vormura

Rósaætt

Rosaceae

Hæð

jarðlæg, um 5 cm

Blómlitur

bleikur

Blómgun

júní - júlí, stendur frekar stutt í blóma

Lauflitur

silfraður

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, grýttur, rakur, kalkríkur

pH

hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð við rétt skilyrði

Heimkynni

Alpafjöll

Murur, Potentilla, er stór ættkvísl í rósaætt, Rosaceae, með útbreiðslusvæði um norðurhvel jarðar. Flestar blómstra gulum blómum, en nokkrar hvítum, bleikum eða rauðum. Þær þrífast best í sól í frekar þurrum, rýrum jarðvegi.​

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að hausti

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita í nokkrar vikur og síðan haft úti fram að spírun.

Jarðlæg steinhæðaplanta með silfurhærðu laufi. Getur verið treg til að blómstra.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

Garðaflóra slf.
kt: 550421-1430

vsk. nr.: 140886
Suðurgötu 70, 220 Hafnarfirði

S: 780-8875

gardaflora@gardaflora.is

Opnunartími:
 

Eingöngu vefverslun

Afhending sóttra pantana

eftir samkomulagi

Opnunartími garðplöntusölunnar birtist hér á síðunni og á Facebook síðu Garðaflóru

  • Facebook App Icon
  • Instagram
  • bluesky-seeklogo
bottom of page