top of page

Potentilla villosa

Loðmura

Rósaætt

Rosaceae

Hæð

lágvaxin, um 10 - 15 cm

Blómlitur

gulur

Blómgun

júní - júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, grýttur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

virðist harðgerð, en er treg til að blómstra

Heimkynni

Vestanverð N-Ameríka frá Alaska til Oregon

Murur, Potentilla, er stór ættkvísl í rósaætt, Rosaceae, með útbreiðslusvæði um norðurhvel jarðar. Flestar blómstra gulum blómum, en nokkrar hvítum, bleikum eða rauðum. Þær þrífast best í sól í frekar þurrum, rýrum jarðvegi.​

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að vori

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita fram að spírun.

Vex í skriðum, klettasprungum, engjum og freðmýrum í heimkynnum sínum.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page