top of page

Primula allionii

Demantslykill

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxin, um 5 cm

Blómlitur

lillableikur

Blómgun

maí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

mjög vel framræstur, grýttur, kalkríkur

pH

basískt

Harðgerði

viðkvæm

Heimkynni

Alpafjöll

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð að hausti eða síðvetrar.

Fræ ekki hulið og haft úti fram að spírun.

Háfjallaplanta sem þolir ekki vetrarumhleypinga.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page