top of page

Primula hirsuta

Roðalykill

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxinn, 10 - 15 cm​

Blómlitur

rósbleikur

Blómgun

lok apríl - maí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, rakur, lífefnaríkur, grýttur

pH

súrt - hlutlaust

Harðgerði

frekar viðkvæmur, þolir illa vetrarbleytu

Heimkynni

Alparnir og Pýreneafjöll

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð að hausti eða síðvetrar.

Fræ ekki hulið og haft úti fram að spírun.

Frekar viðkvæm steinhæðaplanta.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page