![]() |
---|
Primula japonica 'Appleblossom Pink'
Japanslykill
Maríulykilsætt
Primulaceae
Hæð
lágvaxinn, um 30 cm
Blómlitur
fölbleikur
Blómgun
júní - júlí
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
frjór, vel framræstur, frekar rakur
pH
súrt - hlutlaust
Harðgerði
óþekkt, varð skammlífur
Heimkynni
garðaafbrigði, tegundin vex villt í Kákasusfjöllum
Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.
Fjölgun:
Skipting að vori eða hausti.
Sáning - sáð að hausti eða síðvetrar.
Fræ ekki hulið og haft úti fram að spírun.
Mögulega viðkvæm tegund.