top of page

Primula x pubescens (I) 'Mrs. J. H. Wilson'

Frúarlykill (fjallaáriklur)

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxinn, 10 - 15 cm​

Blómlitur

dökkbleikur

Blómgun

maí - júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

lífefnaríkur, frjór, rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

garðaafbrigði

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.

Frúarlykill er stór flokkur blendinga mörtulykils (P. auricula) og annarra tegunda í árikludeild. Garðaáriklur hafa mélug blöð og blóm eins og mörtulykill en fjallaáriklur ekki. 'Mrs. J. H. Wilson' er gömul sort sem er algeng í ræktun hérlendis.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page