top of page

Saxifraga oppositifolia

Vetrarblóm

Steinbrjótsætt

Saxifragaceae

Hæð

jarðlægt

Blómlitur

bleikur

Blómgun

apríl - maí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

grýttur, vel framræstur, rakur

pH

hlutlaust-basískt

Harðgerði

harðgert, en svolítið vandgæft í ræktun

Heimkynni

heimskautasvæði og fjöll á norðurhveli m.a. Ísland

Steinbrjótar, Saxifraga, er stærsta ættkvísl steinbrjótsættar, Saxifragaceae, með um 440 tegundir sem dreifast um nyrðra tempraða beltið. Latneska heitið þýðir bókstaflega steinbrjótur og er talið vísa til vaxtaskilyrða margra tegunda sem vaxa í klettasprungum og grjótskriðum hátt til fjalla. Aðrar tegundir eru heldur stórvaxnari og vaxa á rökum engjum, en flestar tegundir, jafnvel þær sem vaxa í klettum vaxa þar sem raki er í jörðu eða vatn seitlar fram. Nokkrar tegundir vaxa villtar á Íslandi (*).

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð í september - nóvember.

Fræ hefur stutt geymsluþol og ætti að geymast í kæli þar til því er sáð.

Fræ ekki hulið og haft við stofuhita í 4-6 vikur. Ef fræ spírar ekki á þeim tíma er það haft úti fram að spírun. Spírar best við 5-12°C.

Innlend tegund, algeng um land allt. Vetrarblóm er háfjallaplanta sem blómstrar bleikum blómum þegar snjóa leysir. Það þarf grýttan jarðveg og gott frárennsli og vex best þar sem snjóþekja er yfir veturinn.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page