top of page
![]() |
---|
Sedum telephium 'Novem'
sh. Hylotelephium telephium 'Novem'
Jónsmessuhnoðri
Helluhnoðraætt
Crassulaceae
Hæð
lágvaxinn, um 20-30 cm
Blómlitur
rauðbleikur
Blómgun
ágúst - september
Lauflitur
purpurarauður
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerður
Heimkynni
garðaafbrigði, tegundin vex villt víða um Evrasíu.
Hnoðrar, Sedum, er stór ættkvísl allt að 600 tegunda í helluhnoðraætt, Crassulaceae, með útbreiðslu víða um norðurhvel jarðar. Þetta eru jurtkenndir eða runnkenndir þykkblöðungar sem þola mikinn þurrk og þrífast best í sól.
Fjölgun:
Skipting að vori eða hausti.
Sáning - sáð í mars.
Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun.
Þurrkþolinn og þokkalega harðgerður. Þolir illa blautan jarðveg, sérstaklega að vetri til.
bottom of page