top of page
Allium amplectens 'Graceful Beauty' (10 stk)

Allium amplectens 'Graceful Beauty' (10 stk)

Sveiglaukur

 

'Graceful Beauty' er afbrigði af sveiglauk sem blómstrar hvítum blómum í kúlulaga sveip. 

 

 

10 stk. í pakka.

 

Áætlað verð er 710 kr. Hægt er að forpanta með því að greiða staðfestingargjald, 400 kr. Reikningur fyrir eftirstöðvum verður svo sendur út fyrir afhendingu í september.

  • Ræktunarleiðbeiningar

    Skrautlaukar (Allium) eru fjölærir í sumum tilfellum. Þeir þurfa sólríkan vaxtarstað og vel framræstan jarðveg til að þrífast vel. Laukarnir eru gróðursettir á þeirri dýpt sem samsvarar því að moldarlagið yfir laukunum sé tvöföld hæð laukanna.  Eftir blómgun eru blómstönglarnir klipptir af, en laufið látið vera þar til það fölnar. Þannig safnast öll orkan í laukinn í stað þess að fara í fræmyndun. Þar sem laufið er ekki mjög fallegt á meðan það fölnar, er best að planta laukunum inn á milli fjölæringa sem hylja laufið.

660kr Regular Price
594krSale Price
Tax Included
Out of Stock

Tengdar vörur

bottom of page