top of page
Anemone 'Lord Lieutenant' - í potti

Anemone 'Lord Lieutenant' - í potti

Maríusnotra (Anemone coronaria) - fyllt blóm

 

'Lord Lieutenant' er sort af maríusnotru sem blómstrar fylltum, bláfjólubláum blómum.

 

4 stk. í 11x11 cm potti

7 stk. í 2 lítra potti

 

  • Ræktunarleiðbeiningar

    Animónur, eða maríusnotrur, þrífast vel í sól eða hálfskugga í frjóum, vel framræstum jarðvegi. Þær er hægt að forrækta í pottum, eða planta beint út í maí. Ef þær eru forræktaðar inni þarf að gæta þess að hafa þær ekki í of miklum hita, gróðurhús eða gróðurreitur myndi henta best.  Mörgum finnst erfitt að átta sig á því hvernig hnýðin eiga að snúa. Það getur hjálpað að leggja þau í bleyti í nokkrar klukkustundir, en ef í vafa, er einfaldasta leiðin einfaldlega að snúa þeim upp á rönd.

    ​Maríusnotrurnar ná yfirleitt bara að blómstra fyrsta árið eftir gróðursetningu. Hnýðin lifa veturinn af og senda upp ræfilslegt lauf og jafnvel stöku blóm næstu sumur á eftir, en þær verða aldrei eins fallegar og fyrsta sumarið.

PriceFrom 600kr
Tax Included

Tengdar vörur

bottom of page