Astilbe chinensis 'Visions in Red'
Kínablóm
'Visions in Red' er afbrigði af kínablómi með rauðum blómum sem verður um 40 cm á hæð.
Þrífst vel í sól eða hálfskugga og blómstrar í ágúst - september.
1 stk. í 11x11 cm potti.
Ræktunarleiðbeiningar
Musterisblóm (Astilbe) eru ræktuð sem skuggaplöntur í heitara loftslagi, en hér á landi þurfa þau sól a.m.k. hálfan daginn. Þau þrífast best í vel framræstum, lífefnaríkum, jafnrökum jarðvegi. Blómgun í ágúst - september. Þurfa ekki stuðning. Frábærar garðplöntur, sem þurfa litla umhirðu.
Musterisblómaættkvíslin - Astilbe
Musterisblóm eru fjölærar plöntur sem tilheyra ættkvíslinni Astilbe í steinbrjótsætt (Saxifragaceae). Þau blómstra síðsumars og fram eftir hausti og setja mikinn svip á garðinn á þeim árstíma. Blómstönglarnir eru sterkir og þurfa ekki stuðning. Þeir standa frameftir vetri Musterisblóm þrífast best í sól eða skugga part úr degi í frjóum, vel framræstum jarðvegi.