top of page
Astilbe 'Moccachino'
  • Astilbe 'Moccachino'

    Kínablóm

     

    'Moccachino' er hávaxið afbrigði af musterisblómi með kremhvítum blómum og dökkgrænu-bronslituðu laufi sem verður um 60-90 cm á hæð.

    Óreynt yrki, en musterisblóm hafa almennt þrifist vel hér á landi.

     

    1 stk. í 11x11 cm potti.

     

    • Ræktunarleiðbeiningar

      Musterisblóm (Astilbe) eru ræktuð sem skuggaplöntur í heitara loftslagi, en hér á landi þurfa þau sól a.m.k. hálfan daginn. Þau þrífast best í vel framræstum, lífefnaríkum, jafnrökum jarðvegi. Blómgun í ágúst - september. Þurfa ekki stuðning. Frábærar garðplöntur, sem þurfa litla umhirðu.

    • Musterisblómaættkvíslin - Astilbe

      Musterisblóm eru fjölærar plöntur sem tilheyra ættkvíslinni Astilbe í steinbrjótsætt (Saxifragaceae).  Þau blómstra síðsumars og fram eftir hausti og setja mikinn svip á garðinn á þeim árstíma. Blómstönglarnir eru sterkir og þurfa ekki stuðning. Þeir standa frameftir vetri  Musterisblóm þrífast best í sól eða skugga part úr degi í frjóum, vel framræstum jarðvegi. 

    1.000krPrice
    Tax Included
    Out of Stock

    Tengdar vörur

    bottom of page