Crocosmia masoniorum
Storkalilja
Storkalilja verður um 80-100 cm á hæð og blómstrar appelsínugulum blómum.
10 stk í pakka
Ræktunarleiðbeiningar
Glóðarliljur (Crocosmia) blómstra klösum af gulum, appelsínugulum eða rauðum blómum á 50-100 cm háum blómstönglum sem vaxa upp úr brúsk af ljósgrænu striklaga laufi. Þær þurfa forræktun inni á hlýjum og björtum stað eigi þær að ná að blómstra og sólríkan vaxtarstað utandyra. Hnýðin þola ekki frost, svo þau þarf að geyma á frostlausum stað yfir vetrarmánuðina ef ætlunin er að rækta þau aftur að vori.