Crocus chrysanthus 'Gipsy Girl' (10 stk.)
Tryggðakrókus
'Gipsy Girl' er afbrigði af tryggðakrókus sem blómstrar ljósgulum blómum með dökkbrúnum rákum á ytri krónublöðunum.
10 stk. í pakka.
Ræktunarleiðbeiningar
Krókusar eru á meðal fyrstu blómlauka til að blómstra á vorin, oft í lok mars eða í byrjun apríl. Blómin opnast bara í sólskini, svo til þess að þeir njóti sín vel þurfa þeir sólríkan vaxtarstað og vel framræstan jarðveg. Hnýðin eru gróðursett á ca. 10 cm dýpi.