top of page
Gladiolus 'Sochi'

Gladiolus 'Sochi'

570kr Regular Price
428krSale Price
Tax Included

Stórblóma gladíóla

 

Stórblóma gladíólur eru hávaxnar, 90-160 cm á hæð og blómstra stórum blómum í löngum blómklösum. Þurfa góðan stuðning.

 

'Sochi' verður um 70-100 cm á hæð og blómstrar ferskjubleikum blómum.

 

10 stk í pakka

Out of Stock
  • Ræktunarleiðbeiningar

    Gladíólur þurfa langa forræktun inni og hlýjan, skjólgóðan og sólríkan vaxtarstað úti.  

    Hnýðin eru gróðursett í hæfilega stóran pott, miðað við fjölda, í byrjun mars og ræktuð inni á björtum og svölum stað þar til frosthætta er liðin hjá. Gróðurlýsing er ekki nauðsynleg, en gagnleg til að vöxtur verði ekki of teygður.  Mikilvægt er að vökva ekki of mikið, því hnýðin geta auðveldlega rotnað ef moldin er of blaut. Best er að vökva vel ca. vikulega og leyfa moldinni svo að þorna á milli.

    Gladíólur þurfa sólríkan vaxtarstað til að ná að blómstra. Þær þurfa vel framræstan jarðveg, því þær vilja ekki standa í bleytu, en þó þurfa þær töluverða vökvun þegar þær eru komnar í fullan vöxt.  Gæta þarf þess að nota ekki of köfnunarefnisríkan áburð, því þá verður blómgun minni, áburður ætlaður tómötum er t.d. fínn. 

    Hnýðin þola ekki frost, en séu þau tekin inn og geymd yfir veturinn er hægt að planta þeim aftur að vori. Ef ætlunin er að geyma hnýðin er mikilvægt að klippa ekki laufið eftir blómgun, heldur leyfa því að visna náttúrulega svo hnýðin nái að safna nægum forða. Ef þau voru ræktuð í potti yfir sumarið er hægt að láta hnýðin þorna í pottinum, geyma pottinn á svölum stað og byrja svo að vökva aftur í mars. Þegar nývöxtur birtist þarf að koma pottinum fyrir á björtum, svölum stað.  Það er þó mælt með því að hreinsa moldina vel af hnýðunum og láta þau þorna í nokkra daga og geyma þau svo vafin í dagblöð eða í sandi/vikri/sagi yfir vetrarmánuðina. Þau eru svo gróðursett aftur að vori og ræktuð á sama hátt og árið á undan.

Tengdar vörur

bottom of page