top of page
Lilium 'Chocolate Event'

Lilium 'Chocolate Event'

Asíublendingur (Asiatic-Tiger)

 

Asíublendingar eru yfirleitt fjölærir hér á landi, ef vaxtarskilyrðin eru rétt. Þeir eru hávaxnir og þurfa stuðning og fást í miklu litaúrvali. Asíu-tígurlilju blendingar eru undirflokkur asíublendinga sem eru afrakstur víxlunar við tígurlilju (Lilium lancifolium). Þeir hafa aðeins minni blóm, sem vísa fram eða niður og krónublöðin eru aftursveigð í endana.

 

'Chocolate Event' verður um 110 cm á hæð og blómstrar tvílitum blómum sem eru ferskjubleik með dökkvínrauðum dröfnum.

 

2 laukar í 2 l potti

  • Ræktunarleiðbeiningar

    Liljur eru fallegar garðplöntur sem tilheyra ættkvíslinni Lilium í liljuætt (Liliaceae). Margar eru fjölærar hér, eins og t.d. asíublendingarnir, og þær þurfa ekki forræktun inni. Þeim má planta beint út að vori. Vaxtarstaðurinn þarf að vera sólríkur og skjólgóður og jarðvegurinn þarf að vera frjór, vel framræstur og lífefnaríkur.

    Aðrir liljuflokkar, eins og t.d. austurlandaliljurnar, eru viðkvæmari og verða ekki langlífar utandyra hérlendis. Þær má rækta í pottum og geyma í gróðurhúsi eða kaldri geymslu yfir vetrarmánuðina.

    Hávaxnar sortir þurfa góðan stuðning.

1.200krPrice
Tax Included
Out of Stock

Tengdar vörur

bottom of page