top of page
Lilium 'Fusion'

Lilium 'Fusion'

Tegundablendingur (Species)

 

Tegundablendingar lilja eru fjölbreyttur hópur sem inniheldur allar liljutegundir og blendinga af þeim sem falla ekki í aðra flokka.

 

'Fusion' er fyrsti liljublendingurinn sem verður til við víxlun L. longiflorum og L. pardalinum og mætti segja að hér mætist austrið og vestrið, því L. longiflorum vex í Austur-Asíu og L. pardalinum á vesturströnd Bandaríkjanna.  Útkoman er falleg lilja sem verður um 100 cm á hæð og blómstrar dröfnóttum, gulum blómum með rauðum jöðrum og aftursveigðum krónublöðum.

 

2 laukar í 2 l potti

  • Ræktunarleiðbeiningar

    Liljur eru fallegar garðplöntur sem tilheyra ættkvíslinni Lilium í liljuætt (Liliaceae). Margar eru fjölærar hér, eins og t.d. asíublendingarnir, og þær þurfa ekki forræktun inni. Þeim má planta beint út að vori. Vaxtarstaðurinn þarf að vera sólríkur og skjólgóður og jarðvegurinn þarf að vera frjór, vel framræstur og lífefnaríkur.

    Aðrir liljuflokkar, eins og t.d. austurlandaliljurnar, eru viðkvæmari og verða ekki langlífar utandyra hérlendis. Þær má rækta í pottum og geyma í gróðurhúsi eða kaldri geymslu yfir vetrarmánuðina.

    Hávaxnar sortir þurfa góðan stuðning.

1.350krPrice
Tax Included
Out of Stock

Tengdar vörur

bottom of page