top of page
Túlipani 'Beauty of Spring'

Túlipani 'Beauty of Spring'

Túlipani (Darwin hybrid)

 

'Beauty of Spring' er Darwin-blendingur sem blómstrar stórum ljósgulum blómum með mjórri rauðri rönd á jöðrunum. Óreynd sort, svo ekki vitað hvort hún blómstrar oftar en einu sinni. 

Verður um 50-55 cm á hæð.

 

Áætlað verð:

8 stk á 920 kr.

50 stk á 4370 kr.

 

Hægt er að forpanta 8 stk pakka með því að greiða tilgreint staðfestingargjald.

Reikningur fyrir eftirstöðvum verður svo sendur út fyrir afhendingu í september.

 

ATH. 50 stk pakka þarf að sérpanta með því að senda tölvupóst á gardaflora@gardaflora.is

  • Ræktunarleiðbeiningar

    Túlipanar blómstra yfirleitt bara vel fyrsta vorið eftir að þeir eru gróðursettir. Þó eru nokkrar undantekningar þar á, en það eru helst Darwin-blendingar (Darwin Hybrids) og nokkrar villitúlipana-tegundir sem eru fjölærar hér.  Þeir þrífast best í frjóum, vel framræstum jarðvegi í sól eða skugga part úr degi og hávaxnari sortir þurfa sæmilega gott skjól til að blómstilkarnir brotni ekki í roki.  Hæfileg gróðursetningardýpt er þreföld hæð lauksins, þ.e. moldarlagið yfir lauknum samsvarar tvöfaldri hæð hans.

PriceFrom 500kr
Tax Included

Tengdar vörur

bottom of page