top of page
Túlipani 'La Paz' (5 stk)

Túlipani 'La Paz' (5 stk)

Túlipani (Single Late)

 

'La Paz' er einfaldur, síðblómstrandi túlipani sem blómstrar fjólubláum blómum með bronslitu skini.

 

5 stk. í pakka.

 

Áætlað verð er 530 kr. Hægt er að forpanta með því að greiða staðfestingargjald, 350 kr. Reikningur fyrir eftirstöðvum verður svo sendur út fyrir afhendingu í september.

  • Ræktunarleiðbeiningar

    Túlipanar blómstra yfirleitt bara vel fyrsta vorið eftir að þeir eru gróðursettir. Þó eru nokkrar undantekningar þar á, en það eru helst Darwin-blendingar (Darwin Hybrids) og nokkrar villitúlipana-tegundir sem eru fjölærar hér.  Þeir þrífast best í frjóum, vel framræstum jarðvegi í sól eða skugga part úr degi og hávaxnari sortir þurfa sæmilega gott skjól til að blómstilkarnir brotni ekki í roki.  Hæfileg gróðursetningardýpt er þreföld hæð lauksins, þ.e. moldarlagið yfir lauknum samsvarar tvöfaldri hæð hans.

490kr Regular Price
392krSale Price
Tax Included
Out of Stock

Tengdar vörur

bottom of page