Viola F1 'Sorbet Raspberry'
Fjólur
Fjólur eru sumarblóm sem henta vel í ker og út í beð. Sorbet serían einkennist af þéttum, veðurþolnum plöntum með nokkuð stórum blómum á fjólu mælikvarða. 'Raspberry' er afbrigði sem blómstrar purpurableikum blómum með dökkri miðju.
Fræ frá Moles Seeds.
Sáð í janúar. Fræ hulið með fíngerðum vikri og haft við stofuhita fram að spírun. Fræ spírar betur í myrkri, svo betra að setja sáningarbox ekki undir ljós fyrr en fræið hefur spírað. Spírun eftir 7-10 daga. Blómgun um 3 mánuðum eftir sáningu.
20 fræ í pakka