top of page

Allium aflatunense

Höfuðlaukur

Laukætt

Alliaceae

Hæð

hávaxin, um 80-150 cm

Blómlitur

purpuralitaður

Blómgun

júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þrífst ágætlega á skýldum stað

Heimkynni

Kasakstan og Kyrgistan í Mið-Asíu

Ættkvíslin Allium, laukar, tilheyrir laukætt, Alliaceae. Hún inniheldur ekki bara matlaukana sem við þekkjum, heldur einnig nokkrar fallegar garðplöntur. Þetta er afar stór ættkvísl sem inniheldur hátt í 1000 tegundir sem flestar eiga heimkynni í tempraða beltinu á norðurhveli jarðar.

Fjölgun:


Laukar settir niður að hausti.


Skipting að vori. Hnaus stunginn varlega upp og laukar losaðir í sundur. Það er mikilvægt að passa að stinga ekki í laukana.


Sáning - þarf kaldörvun, best sáð að hausti.

Fræ rétt hulið og haft í 2-4 vikur við stofuhita og svo er best að setja sáninguna út fram að spírun. Spírun getur verið hæg, fræ gæti spírað ári síðar og því mikilvægt að henda ekki sáningunni of snemma. Spírar best við 5-12°C

Hávaxin laukplanta með hvelfdum kollum af purpuralitum, stjörnulaga blómum. Hann þrífst best í sól í vel framræstum jarðvegi og getur við þær aðstæður lifað í mörg ár.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page