top of page
Mýrastigi

Campanula alliariifolia

Vaxklukka

Bláklukkuætt

Campanulaceae

Hæð

meðalhá, um 30 - 40 cm

Blómlitur

kremhvítur

Blómgun

lok júlí - ágúst

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frjór og lífefnaríkur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð

Heimkynni

Kákasusfjöll og Tyrkland

Ættkvíslin Campanula, bláklukkur, er stærsta ættkvísl bláklukkuættarinnar, Campanulaceae, með yfir 500 tegundum sem dreifast  um norðurhvel jarðar, flestar við Miðjarðarhaf og austur til Kákasus. Tegundir ættkvíslarinnar eru mjög fjölbreyttar frá lágvöxnum háfjallaplöntum, til stórvaxinna engja og skógarplantna. Tvær tegundir, bláklukka og fjallabláklukka, vaxa villtar á Íslandi.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að vori.

Fræ varla hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Spírun getur verið hæg. 

Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Verður fallegust í næringarríkri mold á frekar sólríkum stað.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

Garðaflóra slf.
kt: 550421-1430

vsk. nr.: 140886
Suðurgötu 70, 220 Hafnarfirði

S: 780-8875

gardaflora@gardaflora.is

Opnunartími:
 

Eingöngu vefverslun

Afhending sóttra pantana

eftir samkomulagi

Opnunartími garðplöntusölunnar birtist hér á síðunni og á Facebook síðu Garðaflóru

  • Facebook App Icon
  • Instagram
  • bluesky-seeklogo
bottom of page