Campanula glomerata
Höfuðklukka
Bláklukkuætt
Campanulaceae
Hæð
meðalhá, um 30-40 cm
Blómlitur
fjólublár
Blómgun
júlí - ágúst
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur, frekar rakur, má vera kalkríkur
pH
hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerð
Heimkynni
Evrasía
Ættkvíslin Campanula, bláklukkur, er stærsta ættkvísl bláklukkuættarinnar, Campanulaceae, með yfir 500 tegundum sem dreifast um norðurhvel jarðar, flestar við Miðjarðarhaf og austur til Kákasus. Tegundir ættkvíslarinnar eru mjög fjölbreyttar frá lágvöxnum háfjallaplöntum, til stórvaxinna engja og skógarplantna. Tvær tegundir, bláklukka og fjallabláklukka, vaxa villtar á Íslandi.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð að vori.
Fræ ekki hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.
Mjög breytileg tegund. Getur verið mjög skriðul eða ekki. Kann vel að meta kalkríkan jarðveg, en kemst vel af án þess.